Doddi
22.07.2007 23:15:37 / madsen

Ferðalög...

Jæja komiði marg blessuð og sæl, já þá er kallinn kominn í sumarfrí aftur og það er gaman! Á mánudaginn fóru ég og Darri í ferð um vestfirði, keyrðum frá Ólafsvík, alla Barðaströndina og alla leið á Patreksfjörð (það er mjög ljótur bær... því miður:S) Fundum ekkert á Patró þannig að við brunuðum bara að Breiðavík og gistum þar á flottu tjaldstæði, það eru sko allar græjur, þvottavél, sturtur, bar og meira að segja þráðlaust net... magnað:D Daginn eftir fórum við að Látrarbjargi og það er allsvakalegt að sjá enda voru túristarnir alveg að tapa sér þarna.. keyrðum svo niður á Rauðasand. Vegirnir.... já þeir eru sko algjör fjandans hörmung sumstaðar og þá sérstaklega að Breiðavík, þvílíkt helv.. þvottabretti og svo bara upp úr þurru koma þessi risa björg í miðjum veginum:evil:, þetta er nú bara hneisa!!  Keyrðum svo í alla bæi og í öll krummaskuð vestfjarða, ljótasti bærinn er án efa Patró en sá fallegasti er Tálknafjörður. Næstu nótt gistum við undir fossinum Dynjanda, og svo síðustu nóttina hjá Rögnu Madsen og Saggen á Ísafirði. Brunuðum svo heim á fimmtudag,  og svo á föstudag hófst hin árlega Ólsarafjelags + viðhengi nr. 1. Elísabet útilegan, farið var frá Ólafsvík í Borgarnes og Elí pikkuð upp svo var brunað á Hóla í Hjaltadal og gist þar, besta og flottasta tjaldstæði í heimi:) daginn eftir fórum við á Dalvík og heimsóttum ömmu Elísabetar, hún var mega hress! Fóru  svo í sund. Eftir þetta allt saman var tekið strikið á Akureyri og tjaldað í Þórunnarstræti (þar fengum við líka flottasta plássið).. Um kvöldið var okkur boðið í grill hjá Stefáni Madsen og Guðnýju, það var nú ekki leiðinlegt, góður matur borðaður og mikið hlegið:D Þó furðu mikið að einum manni...... hmm....Fórum á Greifann á sunnudag og svo bara brunað heim.  Góð vika og góð helgi. Farinn.


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 00:36:02 / madsen

Hæ! Ásgeir í Tölvulistanum hér... blablabla.....

Fjandinn, ég bara þoli ekki hann Ásgeir í Tölvulistanum, eitt er víst að ég mun ALDREI stíga fæti inn í þá búð!!! Svei mér þá ef þetta er ekki bara misheppnaðasta auglýsingaherferð í sögu mannkyns, fjandans hörmung:^) Reyndar hef ég aldrei hitt manninn ennnnn hann fer verulega í taugarnar á mér í útvarpinu. Ég votta fjölskyldu þessa manns samúð mína. Farinn.

» 7 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 21:01:24 / madsen

hmm

Jæja... er ekkert að frétta??

» 10 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 17:51:24 / madsen

Sumarbústaðarferð.

Jæja þá er þessi helgi liðin, hún var nokkuð góð skal ég segja ykkur, Ólsarafjelagið plús viðhengi nr. Eitt, Elísabet,  fór í sumarbústað í Miðhúsaskógi. Hefði nú átt að taka mynd að skottinu á Davíð þegar allt var komið í bílinn fokk það hefði ekki komist fyrir einn títiprjónn í viðbót8|, hef bara ekki lent í öðru eins, Greyið Davíð. Við höfðum það djöfull gott eins og okkur einum er lagið, það var spilað, farið í pottinn (ekki ég samt):S, borðað á við 6000 manna byggðalag í Súdan.... :D svo var kíkt á Gullfoss og Geysir eins og hinir túristarnir, kíkt í Reykholt og White trash hjólhýsahverfið var einnig skoðað. Þess á milli var bara legið í leti. Góð helgi.

Farinn.


» 15 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 13:18:31 / madsen

Fjandans danir..

Jæja það er ekkert að frétta af mér,  ég er bara heima í veikindaleyfi enn.... Helvítis danir að vinna leikinn um daginn, ég varð brjálaður... fjandinn, það munaði nánast engu að við hefðum unnið. En svona er þetta.. :evil:

Hér koma svo ein spakmæli að hætti Eyþórs (ekki stolið samt) 

"Oft eru dáin hjón lík...." :lol:                              

Farinn.


» 14 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 13:10:18 / madsen

Einmitt...

Jæja krakkar, þá fer janúar bara að vera búinn... ég er löngu hættur að botna í þessum tíma, það er eins gott að fara að panta herbergi á Jaðri uss... Ég er ekki búinn að vera í mikilli stemnigu undanfarið,  fór í aðgerð 17 janúar má ekki sitja í þrjár vikur:S ÖMURLEGT !! En þetta fer vonandi að lagast:) Ólsarafjelagið margumtalaða (plús viðhengi nr. 1 sem er auðvitað Elísabet) er að fara í sumarbústað í febrúar (man ekki hvenær) ætlum að fara og vera eina helgi í Miðhúsaskógi sem er rétt hjá Laugavatni, það verður örugglega mega stuð hjá okkur:D Svo vil ég taka það fram að það er Darri sem er durgur ekki ég!!! Farinn.


» 8 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 01:56:03 / madsen

Jólafrí er best..

Jæja krakkar, þá er jólafríið bara að verða búið... ekki sáttur. Var samt frábært frí:) Held að það sé ekkert betra en að vera heima í jólafríi, er búinn að borða þvílík ósköp að annað eins hefur ekki sést í áraraðir.:o En svona er þetta, Ólsarafjelagið hefur verið mjög virkt um jólin, það er búið að taka magrar stöðutökur, og svo er auðvitað búið að spila og svoleiðis skemmtilegheit alltaf gaman að spila.:) Svo bara almenn jólaleti búin að vera allsráðandi sem er algjör snilld... En allt tekur enda og ég þarf að fara að vinna á miðvikudag.:( Ég ekki nenna nei. Farinn.


» 13 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 12:31:34 / madsen

Helgin..

Jæja best að skella einni færslu hérna inn, helgin liðin, hún birjaði þannig að Ólsarafjelagið ætlaði að skella sér í bíó á föstudag á myndina The Departed en það var auðvitað uppselt, okkar heppni...:S En jæja á laugardag var hittingur í Heiðrúnu um sexleytið og þar var verslað hitt og þetta svo var farið í Nóatún og verslað í matinn. Svo var farið til Darra og Ólsarafjelagið plús viðhengi nr. 1 (Elísabet) og viðhengi nr. 2 (Breki) fór að elda þennan líka svakalega mat. Svínalundir með sveppapiparsósu og Elísbetarkartöflugratíni mmm þetta var mjög gott:lol:. Enduðum svo helgina á því að fara í bíó á sunnudag á The Departed, mæli með henni. Volvotravel um næstu helgi á Davíð. Svo er eins gott að fólk fari að kommenta á síðuna annars veruð allt vitlaust:^). Farinn.


» 16 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 09:22:17 / madsen

Jæja....

Jæja er ekki best að setja hérna inn svo sem eina færslu, vegna fjölda áskoranna...... reyndar var hún bara ein:| En allavega.. allt gott að frétta, brjálað að gera í vinnunni alveg ótrúlegt hvað íslendingar geta keypt sér mikið af dóti, það virðist ekki skipta máli hvaða mánaðardagur það er. Meira ruglið með þessar hvalveiðar, ég get ekki séð neitt að því að veiða þessa fjandans hvali það er hvort eð er allt of mikið til af þeim, og þessir Bandaríkjamenn þeir þurfa að skipta sér af ÖLLU en þeir gleyma því að þeir eru mesta hvalveiðiþjóð í heimi, þeir eru að veiða allt að 540 stykki á ári og við erum bara að veiða skitin 9 stykki..... Það verður Volvotravel á Tryggva um helgina og fjelagið verður loksins fullskipað:lol: Auðvitað fyrir utan einn Álftnesing hmm..... Góða helgi. Farinn.

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 16:20:01 / madsen

Rólegt

Hef ekkert að segja, það er frekar lítið að gera í vinnunni, ekki skemmtilegt. Fór í jeppaferð með Stormsveitinni http://jeppaklubbur.com/ sem er jeppaklúbbur starfsmanna Flugmálastjórnar, um síðustu helgi helvíti gaman það, þetta voru níu bílar og tók ferðin 17 tíma sem er nú frekar langt, mæli með svona jeppaferðum, þetta er ótrúlega skemmtilegt. Farinn.


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.09.2006 17:31:03 / madsen

Kominn heim.

 

 

Jæja þá erum við komnir aftur frá Marmaris í Tyrklandi, og nei við vorum ekki sprengdir…… sem betur fer.Vorum nú samt ekki nema 800 metra frá sprengingunum. Flugum út þriðjudaginn 22 ágúst og heim 29 ágúst. Þetta er alveg frábær staður að vera á, mjög svo miðjardarhafslegt mmm. Gerðum nú ósköp fátt annað en að liggja á ströndinni og láta sólina grilla okkur og svo auðvitað að éta, það kostar ekkert að borða þarna, maður var að borga svona 300-700 fyrir fínan mat á góðum veitingarhúsum sem er hlægilegt. Fórum í siglingu með fullt af íslendingum, þar voru nokkrir mjög svo skemmtilegir karakterar s.s. Akurnesingurinn sem er alveg eins og Harold í Nágrönnum, og smiðurinn sem reytti af sér ákveðna gerð af rasistabröndurum við mikinn föguð miðaldra kellinganna;), sem voru um borð, alveg frábær. Hótelið var mjög gott og allt til fyrirmyndar. Hitinn var svona um 40 gráður allan tímann og svona 30 yfir nóttina, okkur var sagt að hitinn hefði farið í 51 gráðu tveimur dögum áður en við mættum á svæðið en það er ekki líft í svoleiðis hita. Lentum í tómu rugli nóttina sem við áttum að fara heim, vöknuðum 03:20 af því að við héldum að rútan ætti að fara frá hótelinu kl 04:30, við fórum niður og tjekkuðum okkur út og biðum svo bara eftir rútunni en hún bara kom ekki….8| Þannig að Darri hringdi í neyðarnúmer fararstjóra og komst að því að rútan færi ekki fyrr en 05:30 ohh. Ok lögðum þá af stað, þá tók við tveggja tíma akstur upp á flugvöll, þangað vorum við komnir tveimur tímum fyrir flug en þá kom það í ljós að það var triggja tíma seinkun á fluginu, þannig að við vorum þar í fimm tíma8|  svo tók við sex tíma flug… ansi lang ferðalag, það vara samt allt í lagi því við Darri fengum bestu sætin þ.e.a.s. 11. sætaröð sem er við útganginn. Mjög góð ferð. Farinn.


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 09:13:00 / madsen

Jæja á aðeins jákvæðari nótum

Jæja þá eru við Darri búnir að panta okkur ferð til Tyrklands (Marmaris) förum út 22 ágúst og heim 29 ágúst, þetta verður vonandi góð ferð. Svo fer nú að líða að verslunarmannahelgi, ég ætla bara að skella mér vestur og hafa það bara næs þar:D Farinn. AľČ

» 14 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 12:08:03 / madsen

ÉG VIL FÁ SÓL!!!!

Jæja ég er orðinn hundleiður á þessu andskotans rigningarveðri, það er búið að rigna í allt sumar. Endar með að maður verður bara að stinga af til útlanda. Fór í ferðalag um síðustu helgi með Darra og Helgu, gistum fyrri nóttina á Laugarbakka, fórum svo á Akureyri og á Dalvík og Gistum seinni nóttina á Ólafsfirði, fengum fínt veður og allt. Farinn.


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 23:12:07 / madsen

20 ára fokkshit

Jæja þá er maður bara orðinn 20 ára gamall,  átti afmæli 26 júní síðastliðinn rosalegt. Fékk fullt af frábærum gjöfum takk fyrir það:) Er búinn að vera í sumarfríi í þrjár vikur, þvílíkt sem það er búið að vera næs:lol: Fór til London á Eagles og VÁ hef bara aldrei upplifað annað eins 50.000 manns fokk já. Farinn.

» 15 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 11:40:15 / madsen

Sumarfrí

Jæja þá er kallinn kominn í sumarfrí, í heilar þrjár vikur:lol: Fer ekkert að vinna aftur fyrr en 4 júlí sem er stuð. London á föstudag Eagles á Laugardag heim á þriðjudag stemning. Farinn.


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2